Ekki verður bætt við fleiri félögum fyrir þetta ár.

Ef þú vilt vera skráð(ur) á biðlista fyrir næsta ár skaltu senda inn umsókn í klúbbinn.
Á heimasíðunni má sjá hlekk inn á umsókn fyrir aðild að klúbbnum.
Aðilar sem sækja um eru skráðir í númeraröð á biðlista fyrir inngöngu í klúbbinn fyrir næsta ár.

Fréttabréf vikunnar
  Fréttabréf Golfklúbbsins Serbergs
   Vikan:   24.6 -  1.7.

Mánudagur:

Kvennatíminn fellur niður í dag. Konurnar eru að fara í Leiruna.

Þriðjudagur:

Karlarnir eiga frátekna rástíma frá klukkan 17:00 til 18:30.

Miðvikudagur:

Fráteknir rástímar frá 14:00 til 14:30 (fyrri níu) og frá (cirka) 16:20 til 16:50 (seinni níu) vegna hóps sem ætlar að leika 18 holur.

Meistaramót:

Skráningu lýkur mánudaginn 1. júlí klukkan 18:00.

Fréttir af starfinu í síðustu viku:

Jónsmessan var haldin með miklum gleðibrag og var mikil stemming í liðunum. Tæpt var á mununum á milli liða og endaði mótið á bráðarbana um fyrsta sætið. Héðinn og Sigurður tókust á við níundu braut sem endaði með þessum niðurstöðum:
1. sæti: Guðrún,Guðmundur,Héðinn og Sólveig á 61 höggi
2. sæti: Edda, Eggert, Helga og Sigurður á 61 höggi.
3. sæti: Gunnar Þór, Halla,Haraldur, og Heiðrún á 62 höggum.
Sjá myndir út mótinu á https://www.facebook.com/groups/AllirGSE/

Vökvun:

Flatir verða áfram vökvaðar á tveggja til þriggja daga fresti á meðan að svona þurrt er í veðri.

Sett verður inn tilkynning á https://www.facebook.com/groups/AllirGSE/ ef fyrirhugað er að vökva um kvöldið og/eða morguninn eftir.

Reynt verður að vökva eitthvað af teigum yfir daginn í vikunni. Ef verið er að vökva teig þá biðjum við þá sem eru að spila að:
• skrúfa fyrir vatnið á meðan slegið er; eða
• færa sig á stað sem vökvunin nær ekki til.

Salernisaðstaðan:

Komin er filma í rúðurnar. Reglan er að ganga snyrtilega um og hver þrífur eftir sig.

Meistaramót upprifjun úr síðasta fréttabréfi:

Meistaramótið verður haldið 3. - 6. júlí.

SUMIR FLOKKAR LEIKA í 4 DAGA (miðvikudagur til laugardags) EN AÐRIR í 3 DAGA (miðvikudagur til föstudags eða fimmtudagur til laugardags).

Ekki verður hægt að velja rástíma heldur verður ræst út eftir flokkum. Þetta þýðir að keppendur leika alla dagana með öðrum úr sínum flokki.

Hámarksfjöldi í mótið er 108. Gildir því sú regla að þeir sem skrá sig fyrstir komast að. Ef það fyllist í mótið verður hægt að skrá sig á biðlista.
Leikið verður í eftirtöldum flokkum:
Meistaraflokkur karla 0 - 6,5 Höggleikur í 4 daga (miðvikudagur - laugardags)
1. flokkur karla 6,6 - 11,4 Höggleikur í 4 daga (miðvikudagur - laugardags)
2. flokkur karla 11,5 – 15,0 Höggleikur í 4 daga (miðvikudagur - laugardags)
3. flokkur karla 15,1 - 20,5 Höggleikur í 4 daga (miðvikudagur - laugardags)
4. flokkur karla 20,6 - 28,4 Punktakeppni með forgjöf í 4 daga (miðvikudagur - laugardags)
5. flokkur karla 28,5 og hærri Punktakeppni með forgjöf í 3 daga (miðvikudagur til föstudags). Leikið er af rauðum teigum.
Öldungaflokkur karla: 55 ára og eldri. Punktakeppni með forgjöf og geta keppendur valið hvort þeir leika af rauðum eða gulum teigum. 3 dagar, (fimmtudagur til laugardags).
Kvennaflokkur 1 Höggleikur í 4 daga (miðvikudagur - laugardags).
Kvennaflokkur 2 Punktakeppni í 4 daga (miðvikudagur - laugardags).
Kvennaflokkur 3 Punktakeppni í 3 daga (miðvikudagur - föstudags).

Athugið að þeir karlar sem eru 55 ára og eldri geta valið hvort þeir taki þátt í öldungaflokki eða sínum flokki skv. forgjöf.

Þátttökugjald:
Kr. 5.000 fyrir þá flokka sem spila 4 daga.
Kr. 4.000 fyrir þá flokka sem spila 3 daga.
Skráning Skráning á www.golf.is. Skráning hefst 19. júní klukkan 8:00. Skráningu lýkur mánudaginn 1. júlí klukkan 18:00.

Áætlað er að ræsa út á eftirtöldum tímum:
Miðvikudagur: frá 10:30 til 12:40 og frá 15:50 til 18:00.
Fimmtudagur: frá 10:30 til 12:40 og frá 15:50 til 18:00.
Föstudagur: frá 9:00 til 11:10 og frá 13:50 til 16:00.
Laugardagur: frá 8:00 til 10:00 og frá 13:00 til 15:00.

Ræst verður út eftir flokkum alla dagana. Ekki er endanlega ljóst hvernig ræst verður út en áætlunin er að ræsa út með eftirfarandi hætti:

Miðvikudagur: Kvennaflokkur 1, 2 og 3, 5. flokkur, 4. flokkur, 3. flokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur.
Fimmtudagur: 4. flokkur, 3. flokkur, 2. flokkur, 1. flokkur, 5. flokkur, kvennaflokkur 1, 2 og 3, öldungaflokkur og meistaraflokkur.
Föstudagur: Öldungaflokkur, meistaraflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur, 3. flokkur, 4. flokkur, kvennaflokkur 1, 2 og 3 og 5. flokkur.
Laugardagur: 4. flokkur, 3. flokkur, 2. flokkur, öldungaflokkur, 1. flokkur, kvennaflokkur 1 og 2 og meistaraflokkur.

Stjórnin áskilur sér rétt til þess að breyta flokkaskiptingunni í karlaflokki og framangreindri áætlun á röð flokka við útræsingu áður en mótið hefst.

Rástímar verða birtir klukkan 22:00, mánudaginn 1. júlí.

Ef þú vilt ekki fá þennan vikulega póst, þá getur þú farið inn á þitt svæði á www.golf.is og hakað við að þú viljir ekki rafrænt fréttabréf.