Ekki verður bætt við fleiri félögum fyrir þetta ár.

Ef þú vilt vera skráð(ur) á biðlista fyrir næsta ár skaltu senda inn umsókn í klúbbinn.
Á heimasíðunni má sjá hlekk inn á umsókn fyrir aðild að klúbbnum.
Aðilar sem sækja um eru skráðir í númeraröð á biðlista fyrir inngöngu í klúbbinn fyrir næsta ár.

Fréttabréf vikunnar
  Fréttabréf Golfklúbbsins Serbergs
   Vikan:   20.7 -  26.7

Mánudagur:

Í dag koma GS konur í heimsókn og spila við konurnar í klúbbnum. Ræst verður út af öllum teigum á litla og stóra vellinum klukkan 17:00. Þeir sem spila fyrir þann tíma verða að hafa lokið leik eigi síðar en klukkan 17:00. Völlurinn opnar c.a 20-20:30, þegar konurnar hafa lokið leik

Þriðjudagur:
Karlarnir eiga frátekna rástíma frá klukkan 16:30 til 18:30 á þriðjudögum.

Æfingar hjá krakkahópnum:

Það er æfing í dag frá klukkan 17:00 til 18:00 en æfingin á fimmtudaginn fellur niður þessa vikuna.

Að öðru leyti er ekkert sérstakt á dagskrá í vikunni.